SIÐLAUSU HRÆSNARAR!!!!!!

Að heyra í þessum manni segja að eina hlutverk ríkistjórnarinnar sé að koma þessari þjóðaratkvæðagreiðslu í gegn og að lágmarka skaðann sem forsetinn olli þjóð sinni í gær er til háborinnar SKAMMAR fyrir þessa ríkistjórn.

En skaðinn sem ríkistjórninn reyndi eins og þeir gátu að skapa þjóð sinni með því að ætla að samþykkja þessi skaðræðislög og nánast rétta Bretum og Hollendingum AFSALIÐ af íslandi á silfurfati????????

Hrokinn á sér engin takmörk hjá þessari stjórn enda er hún algerlega óstarfhæf með öllu og eina sem þeir gera er eftir fremsta megni að reyna halda uppi hræðsluáróðri gegn sinni eigin þjóð í stað þess að reyna að þjappa henni saman og fara að vinna í þessum málum eins og menn.

Þessi stjórn ætlar greinilega ekki að láta sér segjast, fyrst fer hún algerlega gegn þjóðvilja, svo þingvilja og að lokum fer hún gegn vilja forsetans og heldur áfram að berja hausnum við steininn, engin furða að hún sé kominn með allt og alla upp á móti sér.

Legg til að þessari stjórn verði mokað útúr stjórnarráðinu með valdi því þeir munu sko aldrei segja af sér þessir valdasjúku siðleisingjar, ráðherrastóllinn verður varinn með kjafti og klóm hvað sem það kostar!!!!!


mbl.is Ríkisstjórnin er starfsstjórn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vítahringur!!!

Sorglegt að sjá hvernig komið er fyrir þjóðinni í þeim ólgusjó sem bankahrunið leidd af sér og fjöldinn allur af stórfyrirtækjum kominn í ríkiseigu, s.s.

Kaupþing
Glitnir
Landsbankinn
Hekla
Penninn
Steypustöðin
Icelandair
Laugarakur
Árdegi
Árvakur

Og fleiri tengt félög.

Enn ekki voru það bara íslensk fyrirtæki sem stóðu í stórræðum í góðærinu sem ég kýs að kalla
"2007 Staðallinn" heldur tóku einstaklingar ekkert síður þátt í ruglinu og tóku lán eftir lán til að fjármagna neysluna og fóru svo að taka enn fleiri lán til að borga af hinum lánunum sem það var hætt að ráða við og svo koll af kolli þar til allt var komið til Helv****

480526a.jpg


mbl.is Fjöldi fyrirtækja í ríkiseigu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað er í gangi??

Mínir menn algerlega heilum horfnir, verða að girða sig í brók ef ekki á illa að fara og fara að vinna sína leiki, liðið alltof sveiflukennt, koma svo Valsmenn Wink

valur.jpg


mbl.is Öruggur sigur hjá Keflvíkingum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ráðgjafaþjónusta er bara ekki nóg!!!

Í samstarfsyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar kemur fram að efla eigi Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna til að stytta biðtíma eftir viðtölum. Starfsstöðin í Sóltúni er sett á laggirnar tímabundið en lagt verður reglubundið mat á þörf fyrir áframhaldandi starfsemi.

Þessi blessaða ríkistjórn verður að fara fatta það að einhver ráðgjafaþjónusta er bara alls ekki nóg, hvernig á að ráðleggja td. einstaklingi eða fjölskyldu sem er með X upphæð á milli handanna hver mánaðarmót enn skuldar YYY vegna gríðarlegra hækkana á lánum matvælum og flest öllu öðru og blasir jafnvel atvinnuleysi.

Það þarf að greina þörfina og taka sko skipulega á vandanum enn ekki bara stinga hausnum í sandinn og vona að ástandið lagist af sjálfum sér.


mbl.is Mikil þörf á fjármálaráðgjöf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú syrtir í álinn!!

Stefnuræða forsætisráðherra fannst mér vægast sagt grátleg þar sem hún nefnir ESB í öðru hverju orði og eins og innganga í ESB muni bjarga íslandi frá glötun, hverslags afneitun og sjálfsblekking er í gangi hérna, það á greinilega að reyna að heilaþvo þjóðina með þessu kjaftæði, svo talar hún um samstöðu flokkana, annar brandari þar á ferð, slá skjaldborg eða kannski tjaldborg um heimilin í landinu, og hvað er búið að gerast ,EKKERT!!!!

Mig líst ekkert á þetta og þessi stefna og þróun sem er að eiga sér stað inná alþingi á  eftir að koma okkur öllum endanlega á kaldann klakann......

6mb_img_9559slandstatsminister.jpg


mbl.is Hljótum að vinna saman
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Cantona yrði flottur hjá man U :)

Ef að einhverjir ættu skilið að fá þennan snilling til sín sem framkvæmdarstjóra þá væri það Man U LoL

Maðurinn er náttúrulega bara hlægilegur að koma með þetta "comment" um að hann mundi vilja þjálfa lið eins og man u, bara beint úr strandboltanum og kvikmyndunum á Old Traffort Cool

Flott þjálfaraefni...


mbl.is Cantona vill þjálfa Man. Utd eða England
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Og hver er vinnuskyldan??

Þessum þingmönnum finnst allt í góðu að þiggja þessi háu laun fyrir vinnu sína sem mér finnst persónulega í hærra lagi og fríðindin full mikil.

Enn hver ætli að sé svo vinnuskyldan á bak við þessi svo ágætu laun sem þessir herrar og frúr þiggja?

alingi____jpg_550x400_q95


mbl.is Kostnaðargreiðslur bætast við kaupið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er það gengistengt??

Skil alveg að innflutt matvæli af hinum ýmsu toga hafi hækkað vegna gengisbreytinga, enn í mörgum tilfellum hafa einnig íslenskar afurðir hækkað jafn mikið og jafnvel meira enn þær innfluttu, ekki er hægt að kenna genginu líka alfarið um það, væri gaman af fá skýringar á hvað veldur því Wink

 


mbl.is Matarverð hefur hækkað um 25%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bláir fingur!!!

Sá á eftir að verða marinn og blár á fingrunum eftir 27 tíma áslátt á píanóið.

Gonzales ætlar að leika 300 verk á tónleikunum, allt frá Summertime eftir Gershwin til Hit Me Baby One More Time sem Britney Spears gerði frægt.

Samkvæmt reglum Guinness fær Gonzales að taka sér 15 mínútna hvíld á þriggja stunda fresti. Gangi allt að óskum slær hann met Indverjans Prasanna Gudi sem lék samfellt í 26 stundir og 12 mínútur í desember sl. 

Gonzales heitir réttu nafni Jason Beck. Hann fæddist í Montreal en býr í París og hefur gefið út sex plötur. 

Geri aðrir betur.

gonzales


mbl.is Ætlar að spila í 27 tíma
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er það með stórnotendaafslætti eða án?

Þykir þetta með ólíkindum að þessir kjaftaskar þurfi að masa svona heiftalega og eyða 25 milljónum af okkar fé í að bulla í símann og nóg bullar þetta lið inná alþingi og allstaðar annastaðar.

Kominn er tími að aðhald og gegnsæi í öllum svona málum því ef uppbygging vorra þjóðar á að hefjast einhverstaðar þá á hún að hefjast hjá hinu opinbera og skulu þeir setja fordæmið af því sem koma skal.

banner.jpg


mbl.is Töluðu í síma fyrir 24,6 milljónir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Höfundur

Guðmundur Fannar Kristjánsson
Guðmundur Fannar Kristjánsson
Hef skoðun á flest öllu og sit ekki á henni.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Tónlistarspilari

- eldbakan eurotilboð2 15.5.09

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband