Til hamingju íslendingar!!!

Hef aldrei átt flugfélag áður og vill ég bara óska íslendingum til hamingju með nýja fyrirtækið, ætti þetta ekki að þýða að þegnar landsins fá nú mun ódýrari flugfargjöld enn áður þar sem að við eigum Icelandair?

icelandair-logo-boeing1.jpg


mbl.is Þjóðnýtingin ekki þruma úr heiðskíru lofti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Afturgöngur!!!!

Réttast væri að öll ríkistjórnin gengi afturábak til vinnu sinnar daglega þannig að andrúmsloftið í þingsal væri mettað af ferskum hugmyndum og skýrri hugsun á hverjum degi, þá gæti stjórnin mögulega haft rænu til þess að byrja á að vinna okkur uppúr skítahaugnum sem búið er að koma okkur í.......

backward_running.jpg

 


mbl.is Gott fyrir heilastarfsemina að ganga aftur á bak
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íslendingar reiðast aldrei...

Nema þegar ríkistjórn, bankar, útrásarottur og annað þessháttar lið rýjir okkur inn að skinni og skilur okkur eftir í botnlausum skuldapytti sem er ekki séns í helvíti að moka sig uppúr, enn það gerist bara á ca ja 50 ára fresti eða hér um bil þannig að við hljótum að vera einstaklega glaðlind og lige glad þjóð  Cool  
mbl.is Bretar styggastir Evrópubúa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ný skoðunarkönnun

Nú styttist óðfluga í úrslitaleik meistaradeildarinnar milli Man Utd og Barcelona og á maður ekki von á öðru enn hörkuleik það sem tvö af bestu knattspyrnuliðum Evrópu mætast í Róm þann 27 maí n.k.

Sjálfur mun ég skella mér í Barca treyjuna og hella í mig sangriu af miklum eldmóð og kyrja einhverja spænska þjóðsöngva Barca til heiðurs.

Skoðunarkönnunninn er vinstra megin á síðunni og spurningin er einföld.

"Hver verður EVRÓPUMEISTARI 27 maí ?"

Gaman væri að sjá hvað þið lesendur góðir hafið um það að segja með því að svara spurningunni.

barcelona-vs-manutd


Ferguson er hluti af Man U

Sé ekki hvað vandamalið er, Benitez er búinn að óska félaginu til hamingju með titilinn, þó að Alex Ferguson sé sir þá ber honum Benitez enginn skylda til þess að óska honum eitthvað sérstaklega til hamingju einnig.

Benitez er greinilega maður hugsjóna og kýs að gera þetta á þennan hátt og mér þykja stuðningsmenn man u taka þetta full nærri sér því stutt er í að næsta tímabil hefjist og sálfræðistríðið mun halda áfram.

Áfram Benitez og áfram LIVERPOOL!!!

 

Rafa&UCL


mbl.is Benítez neitar að óska Ferguson til hamingju með titilinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjarmasigur!!

Að mínu mati vann Norsarinn þessa keppni á sjarmanum og töffaraskapnum einum, þær hafa verið nokkrar gellurnar út um alla Evrópu sem kiknuðu í hnjánum þegar Alexander Rybak stappaði um sviðið.

Lagið sem slíkt var einnig fjandi gott og grípandi og óska ég öllum Norsurum nær og fjær til hamingju með sigurinn Cool

Hér má sjá lagið....


mbl.is Söng „gamla“ þjóðsönginn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kreppumóttökur!!!

Hvorki ríkið né Reykjavíkurborg hafði efni á að gera þetta flottara þannig að móttakan var framkvæmd í kreppustíl á austurvelli því arnarhóll þótti alltof stór fyrir þá kostaðaráætlun sem var í boði.

22175


mbl.is Evróvisjón á Austurvelli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Glæsilegur fulltrúi

Mig þætti frábært að sjá Susan Boyle fara í eurovision fyrir hönd Breta eftir að hún sló svo eftirminnilega í gegn í Britain got talent.

Stórkostlegt þegar svona alþýðu manneskja sem hefur lifað mjög svo fábrotnulífi lífi mætir í svona þátt með nákvæmlega engar væntingar og kemur svona á óvart og sjokkerar heimsbyggðina og fer úr því að vera kona úr einhverju smáþorpi sem enginn hefur heyrt nefnt á nafn í að verða heimsfræg á einu augnabliki, maður ræður ekki við það enn að fyllast væntumþykju fyrir svona einlægri manneskju og það er einmitt svona fólk sem á allt það besta skilið í lífinu Smile

Hér má sjá hennar eftirminnilega flutning í Britain got talent!!!


mbl.is Vilja Susan Boyle í Evróvisjón
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Enska deildin ekki sú sama!!

Mig þætti sorglegt að horfa á eftir Newcastle niður í Coca cola deildina því þar eiga þeir bara alls ekki heima, þeir hafa spilað í efstu deild síðan ég man eftir mér, og deildin yrði alls ekki sú sama án þeirra þannig að ég vill óska þeim góðs gengis í næsta og síðasta leik tímabilsins og vona að þeir hangi uppi.

newcastle-united.jpg


mbl.is Newcastle næstum fallið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Annað sætið svekkjandi!!

Þetta er besti árangur Liverpool síðan tímabilið 89" - 90" þegar við unnum ensku deildina með 82 stig enn samt er maður drullu svekktur yfir því að hafa ekki náð að klára þetta í ár.

Á hinn bóginn verðum við verðugir andstæðingar á næsta tímabili og ég trúi því svo innilega að okkar tími muni koma þá , og nei ég er ekki skyldur Jóhönnu Sigurðardóttir LoL þrátt fyrir orðalag mitt.liverpool-wallpaper-4.jpg

 


mbl.is West Bromvich Albion fallið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Guðmundur Fannar Kristjánsson
Guðmundur Fannar Kristjánsson
Hef skoðun á flest öllu og sit ekki á henni.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Tónlistarspilari

- eldbakan eurotilboð2 15.5.09

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband