Áfram Arshavin!!!

Ef Arshavin mun eiga leik gegn Scum eins og hann átti gegn okkur þá á Man U ekki séns, svo taka Liverpool WBA upp á eyrunum á sunnudaginn, það yrði að sjálfsögðu draumastaða að úrslitin réðust ekki fyrr enn í síðustu umferð og þá er bara að treysta á lukkudísirnar og að man u tapi einnig þeim leik og að við vinnum okkar, tel það ólíklegt enn alltaf má halda í vonina Smile

246009326_bcdf8eb164


mbl.is Benítez biðlar til Arsenal
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kreppuströndin.

Sé fram á að landinn muni spóka sig á ylströndinni sem aldrei fyrr í sumar, þó að það muni um ca 20 gráðum á þessu og Spáni þá er það mun ódýrari lausn og líka styttra að fara Cool

nautholsvik_2.jpg


mbl.is Veðurblíða um helgina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fuglaflensuegg!!!

Sé þetta atriði fyrir mér, eins og úr lélegri hryllingsmynd að maðurinn opnar örbylgjuofninn og útúr honum stekkur brjálað fuglaflensu smitað hænuegg og ræðst á hann að fullum krafti og nagar hann í kinnina Smile

Nei nei bara smá ímyndunarflug í gangi, enn annars er þessi slysalisti þessara fótboltamanna frekar skrautlegur vægast sagt.

cuckoocover.jpg


mbl.is Fótboltamaður slasaðist við að hita egg í örbylgjuofni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eurovision tilboð!!!

Eldbakan Pizzeria er með 20% afslátt af öllum sóttum pizzum og fría heimsendingu á 16" pizzum alla helgina, einar bestu eldbökuðu pizzur bæjarins.

eldbakan_logo_-_ral_3020_848178.jpg

 

 

 

Ögurhvarfi 2
203 Kópavogi
S: 544-8844
www.eldbakan.is

 


Kalt á toppnum!!

Ætli honum Þorgeiri hafi ekki bara verið orðið svona hrikalega kalt eftir 25 ára setu á toppnum.

Það hefur loðað við ofurlaunamenn og hátt setta fyrirtækjatoppa að ef þeim hefur orðið alvarlega á í starfi og áður enn þeim er veitt náðarhöggið af vinnuveitenda sínum þá hafa þeir fengið lokasjens til þess að segja af sér því ekki má skaða orðspor eða æru þessara blessuðu manna sem komu okkur á þann stað sem við erum í dag.

fanabrenna.jpg


mbl.is Forstjóri Lífeyrissjóðs verzlunarmanna segir upp störfum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Slitið úr samhengi!!

Alltaf þykir mér fréttamennska eins og þessi leiðinleg, þegar verið er að slíta frétt úr samhengi til þess að búa til einhverja æsifréttamennsku, hélt að DV og Séð og Heyrt væru bara í því. Cool

Allir smellandi á fréttina í trú um að eitthvað óhapp hafi komið fyrir danska keppandann enn þá var það bara vegna þess að nokkrar þjóðir voru kosnar áfram á undan dönum, enn burt séð frá því líst mér bara mjög vel á danska lagið og óska þeim góðs gengis annað kvöld.

Góða skemmtun


mbl.is Eurovision-keppandi skelkaður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rússneska harðstjórnin!!

Rússar eru ekki að skafa af hlutunum, sé ekki að hverju þeir leyfa ekki þessum samkynhneigðu hópum og einstaklingum að spranga um allar götur hálf alsber hoppandi og skoppandi,á ekki bara að senda herinn á skrílinn Cool , nei kommon í fullri alvöru, hef ekkert á móti samkynhneigðum enn af hverju þurfa þeir að klæða sig upp í efnislittla grímubúninga við hvert tækifæri og fylla allar götur, hljóta að geta komið boðskap sínum á framfæri á annan hátt.

pride.jpg


mbl.is Ætla að stöðva gleðigöngur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til hamingju valsmennn

Ánægður með fyrstu stig valsmanna, sanngjarn sigur og hefði geta orðið mun stærri Smile

498441A


mbl.is Fyrstu stig Valsmanna en Fjölnismenn án stiga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Koma svo Arsenal

Ekki gerist það á hverjum degi að ég færi að styðja Arsenal enn laugardagurinn er svolítið frábrugðin, verð að treysta á lukkudísirnar svo að Arsenal klári Man Utd svo það haldist smá vonarglæta í titilvon Liverpool, þannig að koma svo Arsenal og klárið Scum á laugardaginn og gleðjið mitt stóra Liverpool hjarta.

246009326_bcdf8eb164


mbl.is Arshavin með Arsenal á Old Trafford
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hræsni í sinni ógeðslegustu mynd!!!

Var að lesa um inn á visir.is um að Orkuveitan ætlar að greiða út arð upp á 800 milljónir rétt eftir að þeir fengu starfsfólk sitt til að taka á sig stórfellda launaskerðingu ekki fyrir löngu upp á ca 400 milljónir, sjá frétt hér

Ef þetta er ekki hræsni þá þá er hugtakið einfaldlega ekki til, annan eins viðbjóð hefur maður ekki lesið um lengi og að sjálfsögðu munu þeir komast upp með þetta, ég hélt að það væri ekki hægt að greiða út arð nema það væri hagnaður af rekstrinum og varla er hagnaðurinn mikill þegar þeir þurfa að skikka starfsfólkið til þess að taka á sig launaskerðingu og svo segir stjórnarformaður orkuveitunar að það komi ekki til greina að hækka launin aftur, þegar þetta hyski yfirgefur þennan heim þá fer það rakleiðis til helvítis.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Guðmundur Fannar Kristjánsson
Guðmundur Fannar Kristjánsson
Hef skoðun á flest öllu og sit ekki á henni.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.5.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Tónlistarspilari

- eldbakan eurotilboð2 15.5.09

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband